Haustblær
16.10.2008 | 21:27
Þetta eru skrítnir dagar. Kreppan dynur á fólki og maður veit varla í hvorn fótinn maður á að stíga, fara í Bónus og byrgja sig upp upp af þurrvöru, taka slátur og frysta mjólk eða bara slaka á og hugsa þetta reddast. Þetta hefur nú reddast hingað til og ég ætla að halda áfram að hugsa þannig aðeins lengur.
Ofan á allt saman þá dó þvottavélin okkar, hún áttaði sig greinilega ekki á því að við erum í kreppu. Okkur tókst að ná í sýningareintak af þvottavél í búðinni, lá nærri við slagsmálum því við vorum greinilega ekki þau einu sem misstum þvottavél í kreppunni.
Lífið heldur áfram og það er bara að horfa á björtu hliðarnar og spila bingó. Verðlaunin þurfa ekki að að vera svo merkileg.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:32 | Facebook
Athugasemdir
Ef ég færi að hamstra eitthvað - þá væri það sennilega kaffi
- ekki nenni ég að fylla íbúðina af þurr- eða dósamat ! .....nebb - þetta reddast.
Þvottavélin - ekki skemmtilegasti tíminn til að endurnýja þannig hluti akkúrat núna.....
Lauja, 17.10.2008 kl. 10:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.